Í dag er 4. október og það er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn um allan heim og markar sá dagur leiðarlok Hjólum í skólann verkefnisins hér á Íslandi árið 2017. Alls tóku 7 framhaldsskólar þátt þetta árið og er það aukning miðað við árið áður. Vonandi hefur sú vitundarvakning bæði verið til gagns og gamans fyrir alla sem að því komu.
Við hvetjum alla til að senda okkur efni, myndir og frásagnir af því sem fram fór þannig að hægt sé að deila með öðrum þátttakendum og áhugasömum. Að sjálfsögðu vonumst við til þess að nemendur, skólastarfsmenn og aðrir haldi áfram að notast við virkan fararmáta í leik og starfi.
Heilbrigð hreyfing sem skilar vistvænum árangri er allra hagur.