Hjólum í skólann
Markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta meðal nemenda og starfsmanna framhaldsskólanna. Hjólum í skólann fór fram í fyrsta sinn dagana 16. – 20. september árið 2013 í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna. Í upphafi var Hjólum í skólann skráningarverkefni sem stóð yfir í tvær vikur en árið 2016 var ákveðið að breyta verkefninu, hverfa frá skráningarfyrirkomulaginu og breyta því í einfalt hvattninarverkefni þar sem framhaldsskólanemendur og kennarar eru hvattir til að velja virkan ferðamáta til og frá skóla/vinnu.
Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embætti Landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands Íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið af frumkvæði Hjólafærni á Íslandi og tók hann til starfa síðsumars 2012. Þessi samstarfshópur stóð að Hjóladeginum 18. september 2012 þar sem nemendur og starfsfólk framhaldsskólanna voru hvattir til að hjóla í skólann þennan eina dag.
Það er einlæg von þeirra sem standa að Hjólum í skólann að sem flestir tileinki sér virkan ferðamáta til og frá skóla/vinnu.