Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

  • Youtube
  • Facebook
  • Twitter

Hjólaferð #BeActive og vika í leikslok Hjólum í skólann

28.september.2017

Fjölmargir viðburðir eru á Íþróttaviku Evrópu og einn þeirra er hjólaferð um Öskjuhlíð og Fossvogsdal laugardaginn 30. september kl.12:00 í boði Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Mæting er við vatnsbrunninn við ylströndina í Nauthólsvík og hægt verður að velja um tvær hjólaleiðir. Félagar úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur mun fara yfir helstu atriði þess sem þarf við hjólreiðar og annast leiðsögn á leiðinni. Ókeypis er á viðburðinn og eru allir velkomnir. Við hvetjum alla til að mæta og vera virk - #BeActive

Hægt er að kynna sér á Íþróttaviku Evrópu á Íslandi á heimasíðu BeActive og Facebook-síðu.

Það styttist einnig í lok Hjólum í skólann en lokadagur er á hinum alþjóðlega Göngum í skólann degi þann 4. október næstkomandi. Enn er tími fyrir framhaldsskóla til að skrá sig og taka þátt í að virkja nemendur sína til hollrar hreyfingar og að nýta sér virkan ferðamáta. Við munum fjalla nánar um það sem skólarnir tóku sér fyrir hendur á meðan á verkefninu stóð og vonandi taka sem flestir framhaldsskólar þátt áður en yfir lýkur.

Fréttasafn

Fréttasafn

2023

September.

2022

September.

2021

Ágúst, September.

2020

Ágúst, Desember.

2017

Ágúst, September, Október.

2016

September.

2015

Ágúst, September.

2014

Júní, Ágúst, September.

2013

Ágúst, September, Október.

Heim
Nýskráning
Innskráning
Innskráning með Facebook
Gleymt lykilorð?
Nýskráning
Nýskráning
  • Leiðbeiningar
  • Staðan
    • 0 - 299 nemendur og starfsfólk
    • 300 - 699 nemendur og starfsfólk
    • 700 ofl. nemendur og starfsfólk
  • Um hjólum
    • Hafa samband
    • Virkur ferðamáti
    • Fróðleikur um hjólreiðar
    • Hjólafærni
    • Fréttir
    • Umsjónaraðilar
  • Innskráning
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um hjólum
  • Fréttir
  • Hafa samband

ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi