Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

  • Youtube
  • Facebook
  • Twitter

Íþróttavika Evrópu hefst á morgun 23.september

22.september.2017

Á morgun hefst Íþróttavika Evrópu (European Week of Sports) og stendur hún yfir frá 23.-30. september. Þetta er í annað sinn sem Íþróttavikan er haldin á Íslandi en hún var fyrst haldin árið 2015.

Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Slagorð vikunnar er "BeActive"eða „Vertu virkur“ og með því er verið að hvetja alla Evrópubúa til að hreyfa sig án tillits til aldurs, bakgrunns eða líkamlegs forms.

Íþróttavikan verður ræst með Hjartadagshlaupinu sem hefst kl.10:00 og er hlaupið frá Kópavogsvelli. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið og í boði er að hlaupa vegalengdirnar 5 km og 10 km og keppt í þremur aldursflokkum í karla- og kvennaflokki. Hlaupið er haldið í tilefni af hinum alþjóðlega hjartadegi sem haldinn er á heimsvísu þann 29. september ár hvert.  

Hægt er að skrá sig í Hjartadagshlaupið hér.

Hjólum í skólann hefur sameiginleg markmið og #BeActive varðandi hreyfingu og heilbrigðan lífstíl framhaldsskólanema. Virkur ferðamáti er ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi svo sem með göngu, hjólreiðum, hlaupum, línuskautum og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Margir viðburðir fara fram á meðan á Íþróttavikunni stendur og einn af þeim er hjólreiðaferð með Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. Lagt verður af stað frá vatnsbrunninum í Nauthólsvík kl.12:00 þann 30. september og hægt verður að velja um tvær hjólaleiðir, önnur um Fossvogsdalinn og hin um Öskjuhlíð. Félagar úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur annast leiðsögn og gefa góð ráð varðandi búnað og fleira.

Við hvetjum alla um að taka þátt og nýta tækifærið til að vera virkir og finna sér hreyfingu við sitt hæfi. Það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig til að styrkja líkama og sál.

Hægt er að kynna sér á Íþróttaviku Evrópu á Íslandi á heimasíðu BeActive og Facebook-síðu.

Fréttasafn

Fréttasafn

2023

September.

2022

September.

2021

Ágúst, September.

2020

Ágúst, Desember.

2017

Ágúst, September, Október.

2016

September.

2015

Ágúst, September.

2014

Júní, Ágúst, September.

2013

Ágúst, September, Október.

Heim
Nýskráning
Innskráning
Innskráning með Facebook
Gleymt lykilorð?
Nýskráning
Nýskráning
  • Leiðbeiningar
  • Staðan
    • 0 - 299 nemendur og starfsfólk
    • 300 - 699 nemendur og starfsfólk
    • 700 ofl. nemendur og starfsfólk
  • Um hjólum
    • Hafa samband
    • Virkur ferðamáti
    • Fróðleikur um hjólreiðar
    • Hjólafærni
    • Fréttir
    • Umsjónaraðilar
  • Innskráning
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um hjólum
  • Fréttir
  • Hafa samband

ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi