Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

  • Youtube
  • Facebook
  • Twitter

Evrópsk samgönguvika 2017 & grasrótarátakið #hjóliðmitt

18.september.2017

Um helgina hófst Evrópsk samgönguvika 2017 og stendur hún frá 16. til 22. september ár hvert. Vikan er samstillt átak sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur en evrópskur vefur átaksins er www.mobilityweek.eu.

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli þá samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Margt verður á dagskrá alla vikuna um land allt tengt vistvænum samgöngum og endar átakið á bíllausa deginum föstudaginn 22. september en þá verður m.a. frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sem ávallt.

Hægt er að kynna sér átakið nánar á Facebook-síðu Evrópskrar Samgönguviku

Þá hefur verið í gangi grasrótarátak með myllumerkinu #hjóliðmitt á Instagram síðan í síðustu viku en þar tekur hjólreiðafólk myndir af reiðfáknum sínum og segir frá hjólinu með smá sögu og skemmtilegheitum.

Markmiðið er að minna fólk á reiðhjólið sem samgöngumáta og er tímasetningin hugsuð með það fyrir augum í samgönguvikunni. Verður myndunum endurpóstað á Instagram-reikningnum Hjólið mitt og mun Reykjavíkurborg safna saman og birta þær í Ráðhúsinu á Bíllausa deginum.

Við hvetjum alla til að taka þátt í skemmtilegu grasrótarátaki í tilefni af vistvænni viku í samgöngum með #hjóliðmitt.

Fréttasafn

Fréttasafn

2023

September.

2022

September.

2021

Ágúst, September.

2020

Ágúst, Desember.

2017

Ágúst, September, Október.

2016

September.

2015

Ágúst, September.

2014

Júní, Ágúst, September.

2013

Ágúst, September, Október.

Heim
Nýskráning
Innskráning
Innskráning með Facebook
Gleymt lykilorð?
Nýskráning
Nýskráning
  • Leiðbeiningar
  • Staðan
    • 0 - 299 nemendur og starfsfólk
    • 300 - 699 nemendur og starfsfólk
    • 700 ofl. nemendur og starfsfólk
  • Um hjólum
    • Hafa samband
    • Virkur ferðamáti
    • Fróðleikur um hjólreiðar
    • Hjólafærni
    • Fréttir
    • Umsjónaraðilar
  • Innskráning
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um hjólum
  • Fréttir
  • Hafa samband

ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi