Um helgina hófst Evrópsk samgönguvika 2017 og stendur hún frá 16. til 22. september ár hvert. Vikan er samstillt átak sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur en evrópskur vefur átaksins er www.mobilityweek.eu.
Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli þá samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Margt verður á dagskrá alla vikuna um land allt tengt vistvænum samgöngum og endar átakið á bíllausa deginum föstudaginn 22. september en þá verður m.a. frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sem ávallt.
Hægt er að kynna sér átakið nánar á Facebook-síðu Evrópskrar Samgönguviku
Þá hefur verið í gangi grasrótarátak með myllumerkinu #hjóliðmitt á Instagram síðan í síðustu viku en þar tekur hjólreiðafólk myndir af reiðfáknum sínum og segir frá hjólinu með smá sögu og skemmtilegheitum.
Markmiðið er að minna fólk á reiðhjólið sem samgöngumáta og er tímasetningin hugsuð með það fyrir augum í samgönguvikunni. Verður myndunum endurpóstað á Instagram-reikningnum Hjólið mitt og mun Reykjavíkurborg safna saman og birta þær í Ráðhúsinu á Bíllausa deginum.
Við hvetjum alla til að taka þátt í skemmtilegu grasrótarátaki í tilefni af vistvænni viku í samgöngum með #hjóliðmitt.