Vel gengur með skráningu í Hjólum í skólann 2017 en hægt verður að skrá framhaldsskóla til þátttöku út septembermánuð.
Nú þegar hafa 7 framhaldsskólar skráð sig og þeim mun vonandi fjölga áður en yfir lýkur. Þeir skólar sem eru virkir þátttakendur í Hjólum í skólann 2017 munu hljóta veglegan viðurkenningarplatta til marks um sína þátttöku að verkefninu loknu.
Við minnum alla þátttakendur um að vera virkir í að senda myndir og frásagnir hér á heimasíðuna eða með tölvupósti á magnusg@isi.is
Þetta árið er engin skráning á ferðum en hægt er að halda utan um sína hreyfingu í skráningarkerfi Lífshlaupsins sem er virkt allt árið um kring.