Þá er Hjólum í skólann framhaldsskólakeppni 2015 formlega lokið og viljum við minna á að lokað verður fyrir skráningu ferða kl. 12:00 á morgun, fimmtudaginn 24. september og staðfest úrslit verða birt eftir klukkan 15:00. Engin frestur verður gefin.
Að þessu sinni verður engin formleg verðlaunaafhending Hjólum í skólann en við munum senda vinningsskólum verðlaunaplattana.
Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum stærðarflokki og fer röðunin eftir hlutfalli daga.
Ef þið lendið í vandræðum við skráningar þá endilega hafið samband sem fyrst á netfangið hronn@isi.is svo hægt sé að leysa úr vandanum hratt og örugglega.
Með kveðju
Sigríður og Hrönn