Hér að neðan eru góðar skráningarleiðbeiningar fyrir Hjólum í skólann 2015.
Í upphafi þarf að skrá skólann til leiks. Það getur í raun hver sem er tekið það að sér að stofna skólann. Gott er að sá sem geri það sé tengiliður innan skólans við ÍSÍ.
Mjög mikilvægt er að senda út skilaboð til nemenda ef að búið sé að stofan skólann svo krakkarnir getir tekið af skarið og skráð lið til leiks.
Hver og einn einstaklingur skráð sig til leiks og fylgir hann þá leiðbeiningunum hér að neðan eftir.
Síðan getur tengiliður/kennari skráð inn nemendur með excel innskráningu.
Að skrá sig til leiks:
1. Farið er inná vef Hjólum í skólann, www.hjolumiskolann.is
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Valið Nýskráning eða skrá inn með Facebook
4. Stofnaður þinn eigin aðgangur
5. Valið um að stofna skóla* eða stofna/ganga í lið
6. Skráningu lokið
*ef ekki er búið að stofna skóla þá þarf að gera það í skrefi 5. Það þarf að nota kennitölu skólans.
Allar frekari upplýsingar svo sem skráningarleiðbeiningar, reglur keppninar og leiki er að finna á heimasíðu verkefnisins www.hjolumiskolann.is
Ef þið hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband á hronn@isi.is eða í síma 514 4023