Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni fer fram í þriðja sinn dagana 9.-22. september 2015 í tengslum við evrópsku samgönguvikuna. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embættis landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið að frumkvæði Hjólafærni á Íslandi og tók hann til starfa síðsumars 2012.
Opnað hefur verið fyrir skráningu framhaldsskóla í kepnina Hjólum í skólann. Hér á síðunni undir "Um Hjólað" - "Skráningarleiðbeiningar" má nálgast ýtarlegar leiðbeiningar um hvernig er best að standa að skráningu. Framhaldsskólar eru hvattir til þess að kynna sér verkefnið vel áður en hafist er handa við að skrá skólann og þátttakendur til leiks.