Hjólum í skólann – framhaldsskólakeppni fer fram dagana 10.-16. september næst komandi í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Opnað verður fyrir skráningu framhaldsskóla á morgun, fimmtudaginn 14. ágúst kl. 11:00.
Framhaldsskólar eru hvattir til þess að kynna sér verkefnið vel áður en hafist er handa við að skrá skólann og þátttakendur.