Hjólum í skólann, þar sem nemendur og starfsmenn framhaldsskólanna kepptust um að nýta sem oftast virkan ferðamáta til og frá skóla, er nú lokið. Alls tóku 17 framhaldsskólar þátt, um 50% allra framhaldsskóla, með 2.357 þátttakendur. Alls voru hjólaðir 13.472 km eða 10,06 hringir í kringum Ísland. Við það sparðist rúmlega 2.000 kg af útblæstri CO2, tæplega 1.200 lítrar af bensíni og tæplega 300.000 kr. í bensínkostnað.
Vinsælasti samgöngumátinn var strætó þar sem gengið var til og frá stoppistöð með um 45,3% ferða, hjólreiðar með 37,9%, ganga með 12,2%, strætó þar sem hjólað var til og frá stoppistöð 2,1%, hlaup 1,3%, línuskautar 0,7% og annað 0,5%.
Verðlaunaafhending fór fram í dag, föstudaginn 27. september, í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Veittar voru viðurkenningar fyrir felsta þátttökudaga til þriggja efstu skólanna í hverjum stærðarflokki. Úrslit voru þessi:
0 – 399 nemendur og starfsmenn
Sæti |
Skóli |
Þátttökudagar |
1. sæti |
Menntaskólinn á Ísafirði |
0,198 |
2. sæti |
Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra |
0,114 |
3. sæti |
Menntaskólinn á Egilsstöðum |
0,062 |
*Alls voru 4 skólar skráðir til leiks í þessum flokki
400 – 999 nemendur og starfsmenn
Sæti |
Skóli |
Þátttökudagar |
1. sæti |
Kvennaskólinn í Reykjavík |
0,193 |
2. sæti |
Menntaskólinn í Reykjavík |
0,174 |
3. sæti |
Flensborgarskólinn |
0,14 |
*Alls voru 4 skólar skráðir til leiks í þessum flokki
1000 o.fl. nemendur og starfsmenn
Sæti |
Skóli |
Þátttökudagar |
1. sæti |
Fjölbrautaskólinn við Ármúla |
0,225 |
2. sæti |
Menntaskólinn við Hamrahlíð |
0,204 |
3. sæti |
Tækniskólinn |
0,186 |
*Alls voru 9 skólar skráðir til leiks í þessum flokki
Hjólum í skólann er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Hjólafærni á Íslandi, Embætti landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands Íslenskra framhaldsskólanema.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samstarfsaðilum þakka öllum nemendum og starfsmönnum framhaldsskólanna sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna þetta árið og vonumst til þess að sjá enn fleiri á næsta ári.