Á morgun er síðasti keppnisdagur í Hjólum í skólann. Hægt verður að skrá inn sínar ferðir til kl. 12:00 miðvikudaginn 25. september. Framhaldsskólar geta ennþá skráð sig til leiks og einnig er hægt að bæta við liðsmönnum þar til skráningu lýkur.
Verðlaunaafhending Hjólum í skólann verður í hádeginu föstudaginn 27. september í E-sal á 3. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.