Kostir hjólreiða, sem og annarra virkra samgöngumáta eru margir.
Hagkvæmt:
Samkvæmt vefsíðu FÍB er rekstarkostnaður smábíls á bilinu 1,2 - 1,4 milljónir á ári. Fyrir þá upphæð er hægt að kaupa sér árskort í strætó, taka leigubíl 80
sinnum, leigt skyndibíl í 60 daga í miðri viku og 10 helgar yfir árið,
en samt er það allt saman enn ódýrara en að eiga smábíl.
Heilsusamlegt:
Samkvæmt ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu er mælt með því að allir hreyfi sig í a.m.k. 30 mínútur á dag. Á 15 mínútum má t.d. hjóla ca. 4,8 km eða ganga 1,6 km. Með því að hjóla eða ganga þessar vegalengdir til og frá skóla eða til og frá strætóstoppistöð daglega má því ná þessum ráðleggingum. Maður mætir einnig ferskari og betur upplagður til skóla og tilbúinn í að takast á við verkefni dagsins.
Umhverfisvænt:
Miða við 5 km ferð í og úr skóla, 5 daga vikunnar í 34 vikur sparast um 204 kg af útblæstri CO2. Eitt tré á Íslandi teku til sín 2kg af CO2 og það þarf því 100 tré til að kolefnisjafna útblástur frá einum smábíl sem notaður er til að ferðast til og frá skóla á einu skólaári. Mað því að nýta virkan samgöngumáta er því hægt að spara MIKINN útblástur CO2.