Hjólum í skólann hófst í dag mánudaginn 16. september og stendur til föstudagsins 20. september. Nú eru alls 13 skólar skráðir til leiks en það eru um 40% af öllum framhaldsskólum landins.
Við hvetjum þátttakendur til að kynna sér vel reglur Hjólum í skólann og bendum einnig á kynningarefnið sem má nálgast hér.
Ef upp koma vandamál við skráningu þá endilega hafið samband á netfangið kristin@isi.is sem fyrst svo hægt sé að leysa vandann.