Þegar framhaldsskóli er skráður til leiks er byrjað á því að fara í "nýskráningu". Næsta skref er að sá sem skráir skólann þarf að stofna sjálfan sig sem notandi og því næst er framhaldsskólinn skráður sem og lið/liðin sem taka þátt. Nokkrar leiðir eru í boði fyrir næstu skref, en leitast var við því að hafa þær sem fjölbreyttastar svo allir skólar gætu farið þá leið sem þeim finnst þægilegust:
1. Allir í sama liðinu og nemendur og starfsmenn skrá sig sjálfir: Stofna framhaldsskólann - skrá eitt lið - hvetja nemendur og starfsmenn til þess að skrá sig sjálfir inn á vefinn og ganga í liðið. Auðveldast er að stofna sér aðgang með facebook innskráningu en einnig er hægt að fara í nýskráningu í gegnum vefinn.
2. Mörg lið og nemendur og starfsmenn skrá sig sjálfir: Stofna framhaldsskólann - skrá inn mörg lið - hvetja nemendur og starfsmenn til þess að skrá sig sjálfir inn á vefinn og ganga í rétt lið. Auðveldast er að stofna sér aðgang með facebook innskráningu en einnig er hægt að fara í nýskráningu í gegnum vefinn.
3. Eitt lið og umsjónarmaður skráir nemendur og starfsmenn: Stofna framhaldsskólann - skrá eitt lið - skrá svo alla nemendur og starfsmenn í liðið með innlestri á excel skjali.
4. Mörg lið og umsjónarmaður skráir nemendur og starfsmenn: Stofna framhaldsskólann - skrá mörg- skrá svo alla nemendur og starfsmenn í liðin með innlestri á excel skjali.
Leiðir 1 og 2 eru fljótlegastar og einfaldastar fyrir umsjónarmann verkefnisins en leiðir 3 og 4 tryggja betri þátttöku en eru tímafrekar. Ef leiðir 3 eða 4 er farnar skráir umsjónarmaður nemendur og starfsmenn á eigin netfangi og lykilorði og þá fá þeir einstaklingar sendan tölvupóst með notendanafni og lykilorði og geta séð um sýna skráningu sjálfir.
Nokkrar aðrar leiðir eru í boði við skráningu á liðsmönnum en þessar 4 eru þær helstu. Nánari leiðbeiningar má nálgast hér eða á netfaningu kristin@isi.is.